Leikrænar öndunaræfingar fyrir börn · 4 til 9 ára

Kyrrðarstund

Dýrmæt stund fyrir þig og barnið þitt

Fimmtán leikrænar öndunaræfingar á fallegum spjöldum sem hjálpa barninu að finna ró, orku og styrk í gegnum leik og ímyndunarafl. Þið andið saman, hægið á og njótið nærverunnar.

6.990 kr.Væntanlegt í nóvember
Kyrrðarstund gjafakassinn Framhlið spjaldsins Blómaöndun, Ég fyllist kærleika Bakhlið spjaldsins Blómaöndun með æfingunni
FramhliðBakhlið með æfingunni
Í kassanum

Allt sem þarf fyrir rólega samverustund

15

Öndunaræfingaspjöld

Mynd á framhliðinni og æfing á bakhliðinni. Hvert spjald hefur sitt eigið íslenska tilfinningaorð.

160 × 160 mm · ávöl horn · fyrir 4 til 9 ára

1

Leiðbeiningabæklingur fyrir foreldra

Hvernig nota á spjöldin, hvað táknin þýða og hvernig róleg öndun getur stutt við barnið.

Leiðbeiningabæklingur fylgir með.

1

Fallegur gjafakassi

Vandaður og traustur kassi með loki sem geymir spjöldin fallega og er tilbúinn til gjafar.

165 × 165 mm

Táknin þrjú

Finnið æfingu sem hentar augnablikinu

Hvert spjald ber lítið tákn sem sýnir hvað æfingin getur stutt við. Táknin hjálpa ykkur að velja æfingu sem hentar augnablikinu.

Spjaldið Bangsaöndun, Ég fyllist hlýju

Tungl

Til að finna ró

Fyrir svefninn, þegar tilfinningar verða sterkar eða dagurinn hefur verið annasamur.

Dæmi: Bangsaöndun
Spjaldið Blöðruöndun, Ég fyllist kæti

Sól

Til að finna orku

Fyrir gleði og kraft í upphafi dags eða þegar þörf er á léttri og glaðværri stund.

Dæmi: Blöðruöndun
Spjaldið Kanínuöndun, Ég fyllist forvitni

Stjarna

Til að finna styrk

Fyrir hugrekki, von og hlýju þegar eitthvað reynist erfitt eða barnið þarf að safna kjarki.

Dæmi: Kanínuöndun

Hvert spjald hefur sitt eigið nafn og tilfinningu, eins og Ég fyllist hlýju. Allar æfingarnar styðja við rólega og notalega samveru.

Prófið saman

Andið með hringnum

Andið inn um nefið á meðan hringurinn stækkar og blásið rólega út á meðan hann minnkar. Ímyndið ykkur að þið lyktið af blómi og blásið svo varlega upp blöðru.

Fimm andardrættir, um fjörutíu sekúndur
Tilbúin?
Leiðbeiningar

Hvernig nota á spjöldin

Byrjið á því að koma ykkur vel fyrir og leyfið barninu að finna þá stöðu sem því líður best í, sitjandi eða liggjandi, með augun opin eða lokuð. Þegar ró hefur færst yfir, veljið spjald og gefið ykkur smá stund saman áður en æfingin hefst. Skoðið myndina á framhliðinni og lesið síðan æfinguna á bakhliðinni í rólegheitum.

Í æfingunum er andað inn um nefið. Það hjálpar til við að halda önduninni rólegri og mýkri. Útöndunin má fara í gegnum munninn eða nefið, eftir því hvað hentar barninu best.

Fylgstu með líkama barnsins á meðan það andar. Við rólega öndun hreyfist maginn gjarnan mjúklega út og inn á meðan axlirnar fá að vera slakar. Ef barninu líkar snerting getur hlý hönd á öxl eða baki hjálpað því að slaka á.

Endurtakið hverja æfingu nokkrum sinnum og leyfið önduninni að finna sinn eigin takt. Æfingarnar eiga alltaf að vera þægilegar. Ef barnið finnur fyrir svima eða óþægindum er best að gera hlé og anda eðlilega þar til því líður vel aftur.

Gerið æfingarnar þegar ró ríkir. Þannig verða þær barninu kunnuglegar og auðveldara verður fyrir það að grípa til þeirra þegar tilfinningarnar verða sterkar eða það þarf á smá ró að halda.

Leyfið leiknum og ímyndunaraflinu að leiða ykkur áfram.

Það er engin ein rétt leið til að gera æfingarnar. Mikilvægast er að stundin sé róleg, hlý og ánægjuleg.

Fróðleikur

Af hverju virkar þetta?

Öndunin gerist sjálfkrafa, en við getum líka haft áhrif á hana. Þegar við verðum hrædd, kvíðin eða stressuð verður hún oft hraðari og grynnri. Með því að hægja á önduninni getum við hjálpað líkamanum að róast, hjartslættinum að hægja á sér og spennu að minnka.

Róleg öndun hefur áhrif á ósjálfráða taugakerfið, sem stjórnar meðal annars hjartslætti og viðbrögðum líkamans við álagi. Með því að hægja á önduninni fær líkaminn tækifæri til að færa sig úr spennu yfir í meiri ró og jafnvægi. Jafnvel nokkrar mínútur af rólegri öndun geta hjálpað líkamanum að slaka á og finna meiri kyrrð, ró og öryggi.

Börn eru enn að læra að finna jafnvægi þegar tilfinningar verða sterkar. Þar skiptir nærvera fullorðinna miklu máli. Þegar þú hægir á þér og andar rólega með barninu finnur það taktinn í önduninni, röddinni og nærverunni þinni.

Róin þín getur hjálpað barninu að finna sína eigin.

Öndun verður auðveldari að skilja þegar hún fær að vera leikur. Að lykta af blómi eða suða eins og humla leiðir öndunina áfram án langra útskýringa. Þannig lærir barnið í gegnum leik, ímyndunarafl og eigin upplifun.

Æfingarnar beina athyglinni að því sem gerist hér og nú: maganum sem rís og sígur, loftinu sem fer inn og út eða suðinu á vörunum. Þannig æfir barnið nærveru og líkamsvitund.

Með endurtekningu verður öndunin smám saman að kunnuglegu verkfæri sem barnið getur gripið til þegar það þarf á ró, einbeitingu eða smá hléi að halda.

Verslun

Vörur Blómstrum

Kyrrðarstund gjafakassinn
Öndunarspjöld

Kyrrðarstund

6.990 kr.

  • 15 öndunaræfingaspjöld
  • Fyrir 4 til 9 ára
  • Leiðbeiningabæklingur fylgir
  • Gjafakassi með loki
Væntanlegt í nóvember

Allir á biðlistanum fá fría sendingu.

Um Blómstrum

Lítil augnablik sem hjálpa börnum að blómstra

Blómstrum varð til úr löngun til að skapa vörur sem geta haft góð áhrif á börn og fjölskyldur til lengri tíma. Verkfæri sem eru einföld í notkun í hversdeginum, byggja á þekkingu og rannsóknum og styðja við vellíðan, styrkleika og góð tengsl.

Fyrir mér skipti líka máli að vörurnar væru ekki aðeins gagnlegar heldur fallegar. Hlutur sem er fallegur, hlýr og vandaður fær frekar að vera sýnilegur, notaður og verða hluti af daglegu lífi fjölskyldunnar.

Á bak við Blómstrum er Eva Björk Sveinsdóttir, móðir og frumkvöðull með diplómanám í jákvæðri sálfræði. Markmið mitt með Blómstrum er að sameina faglega hugsun, fallega hönnun og einföld verkfæri sem geta stutt börn og fjölskyldur í litlum augnablikum sem skipta máli.

Kyrrðarstund er fyrsta varan frá Blómstrum og upphafið að fleiri vörum sem eru skapaðar með sama tilgangi: að gera eitthvað gott, á fallegan og aðgengilegan hátt.

Væntanlegt í nóvember

Skráðu þig á biðlistann

Kyrrðarstund kemur í nóvember. Þeir sem skrá sig fá að vita fyrstir þegar salan hefst og fá fría sendingu.

Við sendum bara einn póst, þegar salan hefst.